Bæklingar

Bæklingar

Það er ekki til neitt eitt útlit fyrir bæklinga, þeir geta verið allskonar og skemmtilegt getur verið að leika sér með stærðir og útfærslur. Bæklingur er mikil kynning á fyrirtækinu og er gott að vanda til verks. Sumir bæklingar minna á dagblöð, tímarit eða jafnvel bækur, aðrir eru hugsaðir í kynningarstanda eða að komast í ákveðna stærð af umslagi og má pappírinn ekki fara yfir tiltekna þyngd vegna póstburðargjalda. Við uppfyllum allar óskir er varða frágang og útfærslu á bæklingnum. Bæklingar eru til í ýmsum útfærslum og stærðum, skemmtilegt getur verið að útbúa bæklinga í ýmsum stærðum og útfærslum, allt frá 4 síðum upp í 500 eða fleiri. 

Nytsamar upplýsingar og viðmið

Pappírsþykktir Algengt er að innsíður séu á 110-170 gr. pappír og kápa á 200-350 gr. pappír.
Algengar stærðir A4 (210×297 mm.) | A5 (148×210 mm.) | A6 (105×148 mm.) | 99×210 mm. (túristabrot)
Frágangur Brotið og heft í kjöl, fræst í kjöl og gormun eru algengustu aðferðir við frágang bæklinga.
Útfærslur

Laminering, matt eða glans | Plöstun, matt eða glans | Upphleyping | Gylling | Þrykking | Stönsun